Hreppholar

Hrepphólakirkja

Hrepphólakirkja er í Hrepphólum í Hrunamannahreppi og er jörðin landnámsjörð þar sem landnámsmaðurinn Þorbjörn jarlkappi bjó.
Prestakallið var lagt niður 1880 og telst kirkjan nú til Hrunaprestakalls.
Núverandi kirkja var reist árið 1909. Hún er úr timbri og er járnvarin. Árið 1903 var byggð kirkja, þar sem þrír merkustu byggingafrömuðir landsins komu að hönnun og byggingu. Má þar nefna Rögnvald Ólafsson húsameistara.
29. des 1908 gekk yfir Árnesþing gífurlegt fárviðri, sem var kallað kirkjuveðrið og fauk þá hluti kirkjunnar. Hún var síðan reist aftur úr því sem fauk en sumt var skemmt og því styttist hún um fimmtung.
Merkasti prestur þar var Jón Egilsson (1548-1636). Hann er einkum kunnur fyrir annála, sem hann skráði og þykja merkileg söguleg heimild. Af góðum gripum kirkjunnar má nefna altaristöflu eftir Ásgrím Jónsson.