Braedratunga

Bræðratunga

Bræðratunga er einn af mestu sögustöðum Íslands og er það líklega vegna þess að hún er mjög nálægt biskupssetrinu Skálholti.
Fyrst er þar getið um um kirkju í kirknaskrá Páls Jónssonar biskups en einnig er minnst á hana í Sturlungu.
Kirkjan sem þar stendur í dag var reist árið 1911 og lengi framan af öldinni var verið að laga hana til.
Margar frægar sögur hafa átt sér stað í Bræðratungu, t.d. kom Bræðratunga talsvert mikið við sögu í einum af frægustu fjölskylduerjum Íslandssögunnar þegar Brynjólfi Sveinssyni sinnaðist við dóttur sína Ragnheiði er hún varð ólétt. Fór hún þá til frænku sinnar, sem bjó í Bræðratungu, og átti barnið þar.
Einnig er getið um Bræðratungu í einni af frægustu skáldsögum þjóðarinnar, Íslandsklukkunni eftir Nóbelskáldið Halldór Laxness.