Kerti

Kertasmiðjan á Blesastöðum

Kertasmiðja Kristjáns Guðmundssonar var stofnuð á Blesastöðum árið 1994. Starfaði Kristján þar einn í fyrstu og framleiddi handunnin íslensk hraunkerti. Nú spannar framleiðslan flestar kertagerðir á markaðinum.
Kristján segir árangur í kertaframleiðslunni fyrst og fremst byggjast á vandvirkni, nýbreytni og því að fylgjast vel með því sem er að gerast í greininni á erlendri grundu.
Kerti frá Blesastöðum má finna í flestum betri blómavöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu auk margra blómaverslanna á landsbyggðinni.  Nýlega flutti kertaverksmiðjan í söluskálann í Brautarholti þar sem hægt er að skoða og kaupa kerti og fleira.