Fréttir
 
12. janúar 2010
Járninganámskeið í Úthlíð


Námskeið í járningum verður haldið 30.-31. janúar 2010 í Úthlíð, Bisk.
Kennd verða helstu undirstöðu atriði viðvíkjandi járningum.
Kennari: Valdimar Kristinsson, aðstoðarkennari Leó Hauksson

Byrjar kl. 10.00
Námskeið hefst með fyrirlestri þar sem farið verður í innri gerð fóta og hófa, verkfæri, skeifur og alla verkþætti járningar.
Verkleg kennsla síðdegis laugardag og allan sunnudaginn.
Þátttakendur komi með járningaverkfæri og hross til að járna á námskeiðinu. Verkfæri verða til sölu á hagstæðu verði á námskeiðinu.
 
Þátttaka:
a) Full þátttaka,verkleg og bókleg - verð 22.000 kr.
Innifalið í því er hádegisverður báða dagana og molasopi.
b) Áhorfsþátttaka, bókleg og áhorf við verklega kennslu - verð 3000 kr.
með hádegisverði annan daginn 5.500 kr.
 
10.000 kr. staðfestingargjald við skráningu.

Skráning á námskeiðið er hjá Sigurði í Úthlíð í síma 691 2034 eða siggi@uthlid.is
Faglegar upplýsingar hja Valdimar 896 6753

Tilboð á gistingu 15% afsláttur
Dæmi: 5-7 manna sumarhús kr. 20.000 helgin, og 8 manna glæsihús kr. 42.500 helgin,
minnibjálkahús kr. 15.000 helgin
 
Nú erum við farin að bóka borð á þorrablótið.
Sendið tölvupóst á utlid@uthlid.is til að bóka borð.
 
Fylgist með dagskránni á www.uthlid.is
Bestu kveðjur frá öllum í Úthlíð

Til baka